Vinnustaðaskírteini og framkvæmd eftirlits á vinnustöðum
Samkomulag samninganefndar ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini og framkvæmd eftirlits á vinnustöðum sem undirritað var 15. júní sl. er mikilvægur áfangi í baráttunni fyrir því að tryggja að atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum.
Samkomulagið byggir á lögum um sama efni sem samþykkt voru á Alþingi í síðasta mánuði.
Samkomulagið og lögin eru afrakstur af áralöngu starfi Alþýðusambandsins og aðildarsamtaka þess gegn félagslegum undirboðum á íslenskum vinnumarkaði. Miklar vonir eru bundnar við að vinnustaðaskírteinin og eftirlit á vinnustöðunum skili markverðum árangri í þeim efnum. Þótt ekki hafi náðst öll upphafleg markmið ASÍ er um mikilvægan áfanga að ræða. Þá skiptir máli að ágæt samstarf hefur tekist um málið við SA og þá einkum framkvæmdastjóra þess. Einnig hafa Samtök iðnaðarins sýnt málinu mikinn áhuga.
Þá hefur í samstarfi ASÍ og SA verið skrifaður sérstakur hugbúnaður sem ætlað er að auðvelda vinnustaðaeftirlitið og safna í gagnagrunn þeim upplýsingum sem verða til við vinnustaðaeftirlitið.
Samkomulag ASÍ og SA
Samkomulag ASÍ og SA tekur gildi 15. ágúst nk.
Byggingastarfsemi, mannvirkjagerð, rekstur gististaða og veitingarekstur fellur undir gildissvið samkomulagsins. Nánar er gildissvið og afmörkun í samkomulaginu sjálfu. Síðar er gert ráð fyrir að aðrar atvinnugreina fylgi í kjölfarið.
Vinnustaðaskírteinunum er ætlað að auðvelda eftirlit með því að starfsmenn njóti þeirra kjara og réttinda sem þeim ber og koma í veg fyrir ólöglega háttsemi fyrirtækja á íslenskum vinnumarkaði.
Atvinnurekandi skal sjá til þess að starfsmenn fái vinnustaðaskírteini þegar þeir hefja störf.
Á vinnustaðaskírteini skulu eftirfarandi upplýsingar koma fram:
Nafn og kennitala viðkomandi starfsmanns ásamt mynd. Starfsheiti er valkvætt. Ef starfsmaður erlends þjónustufyrirtækis er ekki með íslenska kennitölu skal skrá fæðingardag og ár.
Nafn/heiti atvinnurekanda eins og það er skráð í fyrirtækjaskrá (eða heiti starfsmannaleigu eins og það er skráð hjá Vinnumálastofnun).
Atvinnurekandi er ábyrgur fyrir gerð vinnustaðaskírteinisins og þeim upplýsingum sem þar koma fram. Hann er ekki bundinn við tiltekið form eða útlit svo lengi sem skírteinið uppfyllir skilyrðin hér að framan.
Í samkomulaginu kemur einnig fram að samningsaðilar hafa ákveðið að vinna áfram að sérstökum staðli um vinnustaðaskírteini.
Samkvæmt lögunum er eftirlitsfulltrúum samtaka aðila vinnumarkaðarins heimilt að fara í eftirlitsheimsóknir á vinnustaði atvinnurekanda til að ganga úr skugga um að atvinnurekandi og starfsmenn hans starfi í samræmi við gildandi reglur. Skal eftirlitsfulltrúunum veittur aðgangur að vinnustöðum í þeim tilgangi. Atvinnurekandi og starfsmenn hans skulu bera skírteini á sér og vera reiðubúnir að framvísa því, sé þess óskað af eftirlitsfulltrúa. Með atvinnurekanda er einnig átt við sjálfstætt starfandi einstaklinga.
Í lögunum er kveðið á um að eftirlitsfulltrúarnir skuli senda upplýsingar þær sem fram koma á vinnustaðaskírteini til skattyfirvalda, Vinnumálastofnunar, Tryggingastofnunar ríkisins, lögreglustjóra og, þegar við á, Útlendingastofnunar og Þjóðskrár þannig að unnt sé að kanna hvort atvinnurekandi eða starfsmaður starfi í samræmi við hlutaðeigandi lög sem hverri stofnun er ætlað að annast framkvæmd á. Þá má geta þess að í lögunum er að finna heimildir til Vinnumálastofnunar til að beita fyrirtæki dagsektum ef eftirlitsfulltrúum samtaka aðila vinnumarkaðarins er neitað um aðgengi að vinnustöðum atvinnurekanda eða ef atvinnurekandi eða starfsmenn hans bera ekki vinnustaðaskírteini á sér við störf sín og framangreint er tilkynnt Vinnumálastofnun. Dagsektir geta numið allt að 100.000 kr. á dag.
Undirbúningur undir þennan þátt er þegar hafin og er miðað við að nánari útfærsla á samstarfi framangreindra aðila og verklagi liggi fyrir með haustinu.
Samráðsnefnd ASÍ og SA um framkvæmd vinnustaðaeftirlits er skipuð tveimur fulltrúum ASÍ og tveimur frá SA. Samráðsnefnd skal annast kynningu þessa samkomulags og laga um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum og greiða fyrir upptöku vinnustaðaskírteina, m.a. með gerð fyrirmynda að skírteinum og sérstöku vefsvæði.
Samráðsnefndin hefur yfirumsjón með framkvæmd eftirlits, ákveður áherslur í eftirlitsstarfi í nánu samstarfi við skattyfirvöld og Vinnumálastofnun. Samráðsnefnd er heimilt að fela eftirlitsmönnum sérstök verkefni í tengslum við eftirlit.
Þorbjörn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samiðnar og Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ eru fulltrúar ASÍ í samráðsnefndinni. Fyrir SA eru Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs SA og Árni Jóhannsson, forstöðumaður mannvirkjasviðs SI í samráðsnefndinni.
Af hálfu samningsaðila er lögð áhersla á að fyrstu þrjá mánuði eftir gildistöku samkomulagsins verði hlutverk eftirlitsfulltrúanna einkum að veita atvinnurekendum, sem undir eftirlit falla, upplýsingar um samkomulagið ásamt hvatningu um hrinda því í framkvæmd.
Opnaður hefur verið sérstakur vefur, www.skirteini.is. Á vefnum er að finna upplýsingar um samkomulag ASÍ og SA, lögin og framkvæmdina. Þar er einnig að finna leiðbeiningar um gerð vinnustaðaskírteina.
Næstu verkefni af hálfu ASÍ og aðildarfélaganna
Nú liggur fyrir Alþýðusambandinu og aðildarsamtökum þess að fylgja samkomulaginu og lögunum eftir í framkvæmd.
Hvað varðar Alþýðusambandið er verkefnið m.a. fólgið í að móta frekar framkvæmdina varðandi vinnustaðaskírteinin og vinnustaðaeftirlitið í samráði við eftirlitsfulltrúana. Einnig þarf að ákveða verklag og samstarf við þær opinberu stofnanir sem tilgreinar eru í lögunum. Einn fundur hefur verið haldinn með þessum aðilum til að fara yfir málin. Stefnt er að því að hitta aðilana að nýju eftir sumarleyfi til að vinna málin áfram og móta verklagsreglur. Sama gildir um menntamálaráðuneytið og iðnaðarráðuneytið varðandi eftirlit með starfsréttindum erlendra starfsmanna sem hér starfa.
Vinnustaðaeftirlitið á grundvelli laganna og samkomulagsins mun fyrst og fremst vera á hendi aðildarfélaga og sambanda ASÍ. Á höfuðborgarsvæðinu hefur þegar myndast kjarni fimm eftirlitsfulltrúa félaga og sambanda í bygginga- og mannvirkjagreinum og hótel- og veitingageiranum. Ljóst er að það þarf bæði að þétta þann hóp og um leið þétta net eftirlitsfulltrúa í kringum landið. Mikilvægt er að þau aðildarfélög sem vilja fá viðurkennda eftirlitsfulltrúa samkvæmt lögunum og samkomulaginu sendi óskir um slíkt til samráðsnefndar ASÍ og SA. Fylgja þurfa upplýsingar um þann einstakling sem óskað er eftir að verði viðurkenndur sem eftirlitsfulltrúi, nafn, kennitala og starfsheiti. Hugmyndin er að síðla sumars eða í haust verði haldinn fundur með nýjum eftirlitsfulltrúum, þar sem farið verður yfir verklag og þeim kynntur sá búnaður sem settur hefur verið upp til að auðvelda eftirlitsmönnum störf sín og skrá þær upplýsingar sem þeir afla í eftirliti sínu.
