Skráning á póstlista
Um Matvís
MATVÆLA- OG VEITINGAFÉLAG ÍSLANDS
Stórhöfði 31, 110 Reykjavík
Sími 580-5240
Fax: 580-5210
Opnunartími þjónustuskrifstofu MATVÍS er kl: 10-16.
Frá júní til október kl.: 9-15.
Starfsmenn MATVÍS eru:
Níels Sigurður Olgeirsson
Þorsteinn Gunnarsson
Edda Stefánsdóttir
MATVÍS er félag iðnaðarmanna í matvæla- og veitingagreinum, þ.e.a.s. bakara, kökugerðarmanna, framreiðslumanna,
kjötiðnaðarmanna, matreiðslumanna, nema og annara sem starfa við framreiðslu, matreiðslu og sölu á matvælum
og félagið ákveður að veita viðtöku.
Tilgangur félagsins er m.a.
- Að sameina í eitt félag alla launþega í matvæla- og veitingagreinum með það fyrir augum sem höfuðmarkmið
að vinna að bættum kjörum og öðru því sem stefnir til hagsbóta fyrir félagsmenn. - Að gangast fyrir stofnun stéttarfélaga í matvæla- og veitingagreinum, þar sem slík félög eru ekki fyrir hendi.
- Að hafa forgöngu um samræmdar aðgerðir við samninga um kaup og kjör, og koma fram fyrir þeirra hönd við
samningagerð þegar um heildarsamninga er að ræða. - Að koma fram í samskiptum við önnur heildarsamtök, innlend sem erlend, og opinber yfirvöld, og eiga aðild
að samstarfi norrænna heildarsamtaka greinanna. - Að vinna að aukinni starfsmenntun á því sviði er sambandið tekur tilbæði að því er snertir iðnnám,
framhaldsnám, svo og aðra starfsþjálfun og fræðslustarfsemi hverskonar. - Að starfrækja lífeyrissjóð fyrir félagsmenn og tilnefna fulltrúa í stjórn hans.
- Að stofna orlofsheimilasjóð með iðgjöldum þeim sem vinnuveitendur greiða á hverjum tíma,
samkvæmt samningum félagsins. Hlutverk sjóðsins skal vera að koma upp orlofsheimilum á þeim stöðum er
henta þykir. - Að tryggja félagsmönnum gagnkvæm réttindi í veikinda og slysatilfellum, m.a. með aðild að sameiginlegum
sjúkrasjóði.
| Stjórn MATVÍS | Varamenn í stjórn | ||
| Formaður | Níels S, Olgeirsson | Guðrún Elfa Hjörleifsdóttir | |
| Varaformaður | Geir Bjarnþórsson | Eiríkur Þorsteinsson | |
| Meðstjórnendur | Jón Karl Jónsson | Magnús Hallgrímsson | |
| Gígja Magnúsdóttir | Þorvaldur Jónsson | ||
| Guðfinna Guðmundsdóttir |
EINSTÖK SVIÐ INNAN MATVÍS
Bakara-og kökugerðarsvið
Framreiðslusvið
Kjötiðnaðarsvið
Matreiðslusvið
Matartæknasvið
STJÓRNIR EINSTAKRA SVIÐA MATVÍS
Félagsgjald.
Aðildarfélagar MATVÍS greiða félagsgjald sem er 0.9% af öllum launum.



