Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann okkar hérna:

Nafn:
Netfang:

Um Matvís

MATVÆLA- OG VEITINGAFÉLAG ÍSLANDS
Stórhöfði 31, 110 Reykjavík
Sími 580-5240
Fax: 580-5210

Opnunartími þjónustuskrifstofu MATVÍS er kl: 10-16.
Frá júní til október kl.: 9-15.

Starfsmenn MATVÍS eru:
Níels Sigurður Olgeirsson
Þorsteinn Gunnarsson
Edda Stefánsdóttir

MATVÍS er félag iðnaðarmanna í matvæla- og veitingagreinum, þ.e.a.s. bakara, framreiðslumanna, kjötiðnaðarmanna, matreiðslumanna, nema og annara sem starfa við framreiðslu, matreiðslu og sölu á matvælum og félagið ákveður að veita viðtöku.

Tilgangur félagsins er m.a. 

  1. Að sameina í eitt félag alla launþega í matvæla- og veitingagreinum með það fyrir augum sem höfuðmarkmið að vinna að bættum kjörum og öðru því sem stefnir til hagsbóta fyrir félagsmenn.
  2. Að gangast fyrir stofnun stéttarfélaga í matvæla- og veitingagreinum, þar sem slík félög eru ekki fyrir hendi.
  3. Að hafa forgöngu um samræmdar aðgerðir við samninga um kaup og kjör, og koma fram fyrir þeirra hönd við samningagerð þegar um heildarsamninga er að ræða.
  4. Að koma fram  í samskiptum við önnur heildarsamtök, innlend sem erlend, og opinber yfirvöld, og eiga aðildað samstarfi norrænna heildarsamtaka greinanna.
  5. Að vinna að aukinni starfsmenntun á því sviði er sambandið tekur tilbæði að því er snertir iðnnám, framhaldsnám, svo og aðra starfsþjálfun og fræðslustarfsemi hverskonar.
  6. Að starfrækja lífeyrissjóð fyrir félagsmenn og tilnefna fulltrúa í stjórn hans.
  7. Að stofna orlofsheimilasjóð með iðgjöldum þeim sem vinnuveitendur greiða á hverjum tíma, samkvæmt samningum félagsins.
    Hlutverk sjóðsins skal vera að koma upp orlofsheimilum á þeim stöðum er henta þykir.
  8. Að tryggja félagsmönnum gagnkvæm réttindi í veikinda og slysatilfellum, m.a. með aðild að sameiginlegum sjúkrasjóði.

                           Stjórn MATVÍS.   Varamenn í stjórn.
Formaður Niels S. Olgeirsson   Hjörtur Þór Frímannsson
Varaformaður Þorsteinn Gunnarsson   Þuríður Magnúsdóttir
Ritari Sigurður Magnússon   Þorvaldur Jónsson
Meðstjórnendur Jón Karl Jónsson   Hrafnhildur Steindórsdóttir
  Geir Bjarnþórsson   Eiríkur Þorsteinsson
  Þuríður H Guðbrandsdótir
Gígja Magnúsdóttir
  Sverrir Þór Halldórsson
Aðalbjörn Jónsson
 
 
     


EINSTÖK SVIÐ INNAN MATVÍS 
Bakarasvið 
Framreiðslusvið
Kjötiðnaðarsvið
Matreiðslusvið
Matartæknasvið 

STJÓRNIR EINSTAKRA SVIÐA MATVÍS

Félagsgjald.
Aðildarfélagar MATVÍS greiða félagsgjald sem er 0.9% af öllum launum.

Hér má sjá mynd með skiptingu á félagsgjaldi til MATVÍS

Lesa meira




MATVÆLA- OG VEITINGAFÉLAG ÍSLANDS - Stórhöfði 31, 110 Reykjavík - Sími 580-5240 - Fax: 580-5210 - matvis@matvis.is